Stefán útvarpsstjóri um Samherja: Þeir hafa aldrei beðið um leiðréttingu

Fréttamannasamtökin CPJ birta í dag langa og ítarlega samantekt á Samherjamálinu, ræða þeir við marga aðila málsins, þar á meðal fréttamennina Helga Seljan og Aðalstein Kjartansson, fulltrúa Samherja, formann Blaðamannafélagsins, Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og fleiri.

Í viðtali við CPJ lýsir Helgi hvernig nágranni sagði honum frá því að Jón Óttar Ólafsson, rannsóknarmaður Samherja, hafi verið fyrir utan heimili hans. Samherji sagði að ef svo væri hefði Jón Óttar ekki verið á þeirra vegum. Jón Óttar hafnaði því að hafa verið fyrir utan heimili Helga, hann hefur þó beðist afsökunar á því að elta hann og senda honum smáskilaboð.

Aðalsteinn sagði að fjölmiðlaherferð Samherja hefði haft mikil áhrif á sig og fjölskyldu sína..

Stefán sagði svo í tölvupósti til CPJ að Samherji hefði aldrei óskað eftir leiðréttingu á umfjöllun Kveiks um Namibíumálið. Fulltrúi Samherja svaraði ekki hvort þetta væri rétt en sagði að „við höfum tapað allri trú á RÚV að segja hlutlaust frá málefnum Samherja“.

Hér má lesa fréttaskýringu CPJ í heild sinni.