Stefán Ólafsson, fjallar um jarðakaup erlendra auðmanna á Eyjunni. Tilefni er að meirihluti landsmanna við herða reglur vegna kaupa erlendra auðkýfinga á jörðum en könnun var birt í Fréttablaðinu í dag.
Stefán hefur litla trú á þeirri yfirlýsingu þrátt fyrir að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hafi sagt að þverpólitísk samstöðu ríkti um það innan ríkisstjórnarinnar. Stefán segir:
„En vilja Sjálfstæðismenn það eitthvað frekar nú en áður? Þeir hafa alltaf verið andvígir því að takmarka frelsi auðmanna, hvort sem er til landakaupa eða til að braska með fjöregg þjóðarinnar. [...]Ástæða er til að ætla að Sjálfstæðismenn muni vilja þynna málið út og gera að sýndarbreytingu sem engu máli skiptir.“
Þá rifjar Stefán upp þegar Ögmundur Jónasson þáverandi innanríkisráðherra, setti reglugerð sem takmarkaði heimildir útlendinga til landakaupa hér á landi
„Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst til valda á ný (2013) afnam eftirmaður Ögmundar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, reglugerð hans umsvifalaust. Sagði hana hafa verið á gráu svæði (sem var þó auðvitað út í hött – sjá hér). Síðan þá hafa hér átt sér stað viðamikil uppkaup erlendra auðmanna á landi, ekki síst tengt veiðihlunnindum (sjá hér). Margir hafa áhyggjur af þessari þróun (sjá hér). Breski auðmaðurinn Jim Ratcliffe hefur á stuttum tíma keypt um 1% af Íslandi! Sumt af slíkum eignum er skráð í draugafélögum í skattaskjólum.“