Ísland fær engin verðlaun á Ólympíuleikunum í Tókýó í ár, Ísland sendi aðeins fjóra keppendur að þessu sinni en þrátt fyrir góða frammistöðu var Ísland hvergi nálægt neinum verðlaunapalli. Ísland hefur margsinnis unnið til verðlauna á Ólympíuleikum, fram hefur komið í umræðunni að sérfræðingar í íþróttamálum þjóðarinnar telja Ísland nær því að senda engan á Ólympíuleikana en að vinna til verðlauna.
Sagnfræðingurinn fróði Stefán Pálsson ræddi um samband Íslands og Ólympíuleikana á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Þar ræddi hann mögulega lausn á þessari verðlaunaþurrð.
„Þjóðarsálin er í dálitlu losti eftir þessa leika. Verðlaunafæðin. Við erum með fáa keppendur sem eru ekki að gera neina atlögu að þessu. Ef við ætlum að setjast niður og vera bara mjög lausnamiðuð þá held ég að áherslan ætti að vera á greinar þar sem keppt er í þyngdarflokkum,“ sagði Stefán. „Það eru hnefaleikar, taekwondo, karate, júdó, fangbrögð og lyftingagreinarnar. Þar eru miklu fleiri sæti. Þar eru litlu þjóðirnar sem eru ekki að koma nálægt neinum öðrum medalíum. Þar eru þær að blómstra.“
Stefán telur að í þessum greinum ætti Ísland að einbeita sér að, vilji þjóðin fá medalíur. „Það myndi ég segja. Ef við hugsum þetta krónu fyrir krónu, ef við förum í þyngdarflokkamiðuðu einstaklingsgreinarnar… Helst í kvennaflokki, því hver króna sem er sett þar vegur miklu, miklu þyngra… þá förum við að vinna eitthvað,“ sagði hann. „Við sjáum að Kósovó er nú komið með tvö Ólympíuverðlaun, þar er nú ekki löng Ólympíusaga, það er í júdó kvenna. Þannig að við höfum alveg fyrirmyndirnar.“