Stefán segir félag íslenskra endurhæfingalækna hafa miklar áhyggjur af reykjalundi : fordæma vinnubrögð stjórnarformanns og varaformanns

Mynd: Sveinn Guðmundsson, formaður stjórnar SÍBS

Stefán Yngvason, formaður Félags íslenskra endurhæfingalækna segir félagið hafa haft miklar áhyggjur af gangi mála á Reykjalundi að undanförnu.

Fyrr í dag var haldinn fjölmennur félagsfundur þar sem félagið samþykkti að fordæma vinnubrögð stjórnarformanns og varaformanns stjórnar SÍBS gagnvart forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga Reykjalundar með fyrirvaralausum uppsögnum án skýringa.

Í síðustu viku greindi Hringbraut frá uppsögn Birgis Gunnarsonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Reykjalundar til 12 ára en honum var sagt upp fyrirvaralaust. Þá greindi Hringbraut einnig frá því að stjórn SÍBS hafi ásælst leigutekjur sem Reykjalundur hefur af húsnæðinu.

Í ályktun frá Félagi íslenskra endurhæfingalækna segir að háttsemi vinnubragðanna hafi markast af hroka og virðingarleysi gagnvart einstaklingum og skilningsleysi á mikilvægi þeirrar starfsemi sem fram fer á Reykjalundi.

„Fjarlægð og áhugaleysi forsvarsmanna SÍBS gagnvart starfseminni hefur verið viðvarandi um langt skeið, m.a. vegna viðhorfa sem snúast meira um fjármuni en gæði og mikilvægi þjónustunnar. Það litla traust sem fyrir var á stjórn SÍBS er að engu orðið í kjölfar þessara atburða.“ Segir í ályktuninni.

Þá telur félagið það einnig vekja furðu að í um starf framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi hafi ekki verið gerð krafa um að umsækjendur hafi sérfræðileyfi í endurhæfingarlækningum.

„Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð á læknisfræðilegri endurhæfingu og er því með miklum ólíkindum að á stofnun sem er stærsta endurhæfingarstofnun landsins sé ekki gerð krafa um sérfræðimenntun í endurhæfingarlækningum.“

Áhugamannafélög ekki til þess fallin að stýra heilbrigðisstofnun

Þá telur félagið að áhugamannafélög og sjúklingasamtök séu ekki til þess fallin að stýra heilbrigðisstofnun sem veitir þjónustu sem greidd er af almannafé.

„Háttalag stjórnar SÍBS styður þá skoðun og setur í uppnám áratuga faglegt uppbyggingarstarf á Reykjalundi. Jafnframt vill félagið benda á nýlegt dæmi frá Heilsustofnun NLFÍ þar sem lækni, sem gegndi starfi yfirlæknis og framkvæmdastjóra, var sagt upp fyrirvaralaust vegna ábendinga hans um óeðlilega ráðstöfun fjármuna stofnunar sem nýtur framlags úr ríkissjóði. Hér er um að ræða mikilvæg hagsmunamál almennings sem koma verður í betri farveg. Félagið hefur verulegar áhyggjur af framtíð endurhæfingarlækninga á Íslandi. Mikill skortur er á endurhæfingarlæknum og ef flótti verður frá stærstu endurhæfingarstofnun landsins mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þróun endurhæfingarþjónustu á Íslandi.“