Stefán rúnar ráðinn framkvæmdastjóri ikea

Stefán Rúnar Dagsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi. Stefán Rúnar hóf fyrst störf hjá IKEA fyrir 27 árum og hefur gegnt stöðu verslunarstjóra undanfarin 11 ár, auk þess að hafa verið aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins undanfarin þrjú ár. Hann tekur við stöðunni af Þórarni Ævarssyni, sem sagði starfi sínu lausu á dögunum, og er sagður ætla að opna pítsustað.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá IKEA.  Þar segir að Stefán Rúnar gjörþekki rekstur fyrirtækisins, enda hafi hann sinnt ýmsum störfum innan þess á starfsferlinum og einnig tekið þátt í uppbyggingu IKEA verslana erlendis.

„Stjórn IKEA á Íslandi fagnar því að fá Stefán til starfa sem framkvæmdastjóra og er sannfærð um að hann stýri fyrirtækinu þannig að sterk staða vörumerkis IKEA eflist enn frekar um árabil,“ segir einnig í tilkynningunni

Fyrsta IKEA verslunin á Íslandi var opnuð árið 1981 í Hagkaup í Skeifunni en flutti í núverandi húsnæði í Kauptúni árið 2006. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú um 450. Eigendur IKEA á Íslandi reka einnig IKEA verslanir í Litháen og Lettlandi, og opnun er fyrirhuguð í Eistlandi.