Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson greinir frá því að hann hafi gefið vitnisburð hjá lögreglu í gær. Tveimur dögum áður varð hann vitni að því þegar maður ók utan í annan bíl, virti fyrir sér skemmdirnar og lét sig hverfa og tilkynnti ekki um óhappið. Stefán greinir frá atvikinu á Facebook og tjáir sig nokkur fjöldi fólks undir færslunni. Kemur þá í ljós að fleiri hafa upplifað að hafa orðið vitni af fólki að stinga af eftir árekstur eða þá komið að ökutæki sínu tjónuðu og sá sem varð valdur að tjóninu hafi stungið af.
En í þetta sinn komst viðkomandi ekki undan. Stefán lýsir atvikinu á þessa leið:
„Varð vitni að því fyrir tveimur dögum þegar maður ók utan í bíl, virti fyrir sér skemmdirnar en lét hjá líða að tilkynna um atvikið,“ segir Stefán og bætir við:
„Af rælni tók ég mynd af báðum bílunum, hafði samband við eiganda þess sem ekið var á og kom á hann upplýsingunum. Mikið er það aumt að reyna að stinga svona af.“