Sérskipuð nefnd um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins telur að Stefáni Eiríkssyni, þáverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, hafi ekki verið rétt að víkja lögreglumanninum Gunnari Scheving Thorsteinssyni tímabundið frá störfum, eftir að Gunnar var ákærður í LÖKE-málinu svokallaða.
Þetta kemur fram í álitsgerð nefndarinnar, sem frétavefurinn Kjarninn hefur undir höndum, en þar segir að nefndin hafi klofnað í áliti sínu. Einn nefndarmaður af þremur, lögfræðingurinn Helgi Valberg Jensson, hafi skilaði séráliti þar sem hann taldi að ákvörðun lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins hefði verið réttmæt.
Í ítarlegri útekt Kjarnans á málinu í dag segir að í niðurstöðu meirihlutans segi að ekki hafi verið rétt af lögreglustjóra að veita Gunnari Scheving lausn frá störfum tímabundið á grundvelli starfsmannalaga: \"Er það því álit nefndarinnar að háttsemi sú sem Gunnar var grunaður um hafi ekki verið fullnægjandi grundvöllur ákvörðunarinnar og þar með hafi ekki verið uppfyllt skilyrði 2. málsgr. 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga,“ eins og segir orðrétt í álitsgerðinni. Undir niðurstöðuna skrifa lögfræðingarnir Kristín Benediktsdóttir, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, sem var tilnefnd af heildarsamtökum ríkisstarfsmanna.
Gunnar Scheving Thorsteinsson var ákærður um að fletta upp nöfnum tuga kvenna í málaskrá lögreglu, svokölluðu LÖKE-kerfi, án þess að það tengdist störfum hans sem lögreglumaður. Þá var hann sakaður um að miðla persónuupplýsingum sem leynt áttu að fara til þriðja aðila. Ákæruvaldið féll frá veigamesta ákæruliðnum vegna ágalla á rannsókn málsins og Gunnar var síðar sýknaður af þeim veigaminni í Héraðsdómi Reykjavíkur. Gunnar hefur krafið lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu um bætur vegna málsmeðferðarinnar.