Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson gagnrýnir dagskrá Ríkisútvarpsins harðlega á Twitter-síðu sinni.
Hann er ekki sáttur við dagskrá RÚV, sér í lagi á laugardagskvöldum.
„Ég get ekki hætt að dást að því hvað dagskráin hjá milljarðamaskínunni RÚV er léleg. Skattgreiðendum boðið upp á rusl laugardagskvöld eftir laugardagskvöld,“ skrifar Stefán Máni á Twitter og hafa nokkrir tekið undir með honum og segja laugardagskvöldin sérstaklega erfið.
Ég get ekki hætt að dást að því hvað dagskráin hjá milljarðamaskínunni RÚV er léleg. Skattgreiðendum boðið upp á rusl laugardagskvöld eftir laugardagskvöld.
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) January 28, 2023