Stefán jón: bréf vegna forsetakosninga

Stefán Jón Hafstein hefur sent bréf til 150-200 Íslendinga þar sem hann brýnir fólk til að íhuga vandlega hvernig landsmenn vilji að forsetaembættinu verði beitt. Viðbragð Stefáns gæti verið til marks um hvörf í kosningabaráttunni þar sem nýr forseti verður kjörinn næsta vor en óvíst er hvort hann gefur sjálfur kost á sér.

Í bréfinu segir m.a. að traustir ábyrgðarmenn almannahagsmuna verði að hugsa sig vandlega um hvernig forseta þjóðin vilji og hvert hlutverk forseta eigi að vera. Í forsetakosningum hafi enginn flokkur eða stofnun forræði yfir vali á frambjóðendum né leggi línur um stefnu.

„Þjóðin kýs beint. Það er okkar hlutverk að taka ábyrgð þegar í hönd fara mikilvægar kosningar. Á það vil ég minna með þessu bréfi,“ segir Stefán Jón í bréfinu sem Hringbraut hefur undir höndum í gegnum einn viðtakanda þess.

Einnig segir að forseti Íslands sé áhrifavaldur, afstaða hans til samfélagsmála sé mikilvæg eins og ráða megi af framgöngu allra þeirra sem gegnt hafa embættinu á lýðveldistímanum. „Því miður er staðan sú að stjórnarskráin gefur talsvert svigrúm til frjálslegrar túlkunar á hlutverki og framgöngu forseta. Næsti forseti Íslands þarf því að hafa skýrt umboð til að tala máli almannahagsmuna og beita áhrifum embættisins til góðs.“

Forseti sé þjóðkjörinn, áhrifavald embættisins sé þjóðareign. „Að mínu mati verðum við að íhuga vandlega hvernig við viljum að forsetaembættinu verði beitt á næstu árum og það gert að jákvæðu afli í þágu almannahagsmuna. Hvaða hagsmunir eru það? Í fyrsta lagi eru það skýrir almannahagsmunir að gerðar verði lýðræðisumbætur sem feli í sér aukið áhrifavald almennings á framvindu mála með beinum hætti. Í öðru lagi verður forseti að hafa langtímasýn um réttláta samfélagsgerð og brýna fólk í því efni. Forseti á að vera óbilandi vörður réttlætis og lýðræðislegra aðferða með synjunarvaldi sínu til að taka í taumana þegar tilefni gefst til og skjóta málum undir dóm þjóðarinnar. Almennt séð á forseti að hlusta á, skilja og leiða saman ólík sjónarmið og túlka í þágu menningar, lýðræðis, jafnréttis og þeirra stóru tækifæra sem Ísland á í umhverfismálum. Margt bendir til að verulega muni á reyna í þeim efnum á næstunni, heima og erlendis. Þá á forseti Íslands að bera fram fordómalaus og frjálslynd viðhorf í anda mannúðarstefnu. Andstæð viðhorf munu leitast við að þrengja kosti, ramma þjóðfélagsumræðuna innan viðtekinna múra, viðhalda aðstöðubraski og spillingu og vernda sérhagsmuni - jafnvel ala á fordómum ef því er að skipta. Þetta er viðamikið hlutverk sem ég lýsi - og margþætt. Það skiptir miklu að sá sem velst í embættið hafi styrk og þor til efla grunngildi í frjálslyndu og mannúðlegu lýðræðissamfélagi. Til þess þarf næsti forseti að hafa skýrt umboð. Það er kominn tími til að breyta,“ skrifar Stefán Jón í bréfinu.

Þá segir hann: „Við erum mörg „búin að fá nóg“ þessi fyrstu ár 21. aldarinnar. Forsetakosningar á næsta ári geta markað tímamót í stjórnmálamenningu okkar. Ég hef áhuga á að stofna opinn umræðuvettvang og kanna hug ykkar til hlutverks forseta Íslands.“

Vefsíðan heitir „Hlutverk forseta” og er á Facebook.  Á síðunni er fólki boðið að taka þátt í spurningavagni um hlutverk forseta.