Stefán Jón Hafstein sem verið hefur sendifulltrúi Utanríkisráðuneytisins um langt árabil í Afríku kveður nú álfuna og heldur af stað með koffortið sitt sem hefur fylgt honum í 37 ár.
Þetta tilkynnir hann í kveðjubréfi á fésbók sinni þegar febrúarmánuður var allur: \"Nú er það lagt af stað enn einu sinni, burðardýrið góða - og lýkur þar með Afríkudvöl sem staðið hefur í 10 ár með stuttu hléi á milli. Senn lendum við í borginni eilífu. Sögu koffortsins góða sagði ég þegar við lögðum af stað hingað fyrir þremur árum, og enn skal skrifaður nýr kafli. Meira randið á manni,\" skrifar Stefán Jón.
Hann minnist samverustundanna með koffortinu góða, en það hafi hann keypt á stúdentsárunum í Lundúnum og lengi hafi það geymt verðmætustu dýrgripi hans hvert sem vængir flugfélaganna hafi borið hann: \"Ritvélin hans pabba smellpassaði, á hana skrifaði ég allar ritgerðir mína til BA prófs og fyrstu tvö árin til MA prófs í Ameríku, áður en Apple 2c kom á heimilið. Koffortið geymdi líka innrammaðar myndir og tæki sem ekki þoldu hnjask, gamla Uher segulbandstækið og linusnar af Konicunni. Síðast bar það heim leirstyttur frá Malaví. Það hefur fylgt mér til þriggja heimsálfa og þjónað hlutverki sófaborðs á mörgum heimilum víða um heim. Nú komið einu sinni enn í hendur flutningaþjónustu og innan fárra daga ríf ég utan af því teipið og hátalari, kaffikvörn, hnífasett ásamt töfrasprota af útsölu taka við nýjum hlutverkum. Þetta var risafjárfesting fyrir fátækan námsmann í Lundúnum, heil 25 pund á Oxford Steet, en nú eru árin orðin 34 sem við höfum bollokað saman og enn erum við að.\"
Hann botnar skrif sín og segir að 37 séu nú árin orðin hér og nú í febrúar 2018 \"og vonandi verður fertugsafmæli sambúðar okkar tveggja hátíðlega haldið,\" párar ferðalangurinn og hugsdar til koffortsins góða.