Stefán Jón Hafstein hefur fengið hvatningu úr ýmsum áttum til að bjóða sig fram til forseta.
Hefur hann tekið ákvörðun um að bjóða sig fram?
„Um mögulegt framboð mitt er þetta að segja: Ég hef fengið dálítið af ábendingum og hvatningu frá í sumar og ákvað að sinni að ákveða ekkert - af eða á. Það er mikilvægara að fá umræðuna um hlutverk forseta á gott skrið áður en kemur að slíkum ákvörðunum,“ segir Stefán Jón Hafstein í samtali við Hringbraut frá Úganda, en þar er hann staddur nú starfa sinna vegna.
„Ég hef vissulega mínar hugmyndir og skilgreint erindi sem ég tel að gæti gagnast á þessum vettvangi, en hvort fólk hefur áhuga á því sama, eða mér persónulega til þeirra verka, er bara órætt mál að mestu. Ég hugsa málið eins og margir hafa beðið mig um.“
Athygli vekur að nú þegar aðeins eru rúmir átta mánuðir í forsetakosningar og fullkomin óvissa um hvort Ólafur Ragnar Grímsson býður sig fram, að engir líklegir kandídatar hafa sannarlega gefið sig upp í baráttunni um forsetaembættið. Stefán Jón er með vissum hætti fyrstur „þungavigtarmanna“ til að ljá máls á því að ef stuðningur skapist fari hann fram. Sjálfsagt hugsa þó fleiri sér til hreyfings að hans mati.
„Svona framboð er ekki eins manns verk og ég ákvað að reyna að leggja gott til þó ekki væri meira og hafa umræðuna á okkar forsendum - okkar sem ráðum í raun ferð. Svo er bara að sjá til hvers það leiðir, en nýir tímar bjóða upp á ný vinnubrögð og nýtt fólk. Nú vil ég taka forystu um að virkja möguleika samfélagsmiðlanna til umræðu og hafa þarna inni spurningalista, eins konar könnun, til að fá fólk til að velta fyrir sér hlutverki forseta á næsta kjörtímabili áður en við persónugerum kjörið. Hvað viljum við með embættið? Það er spennandi að nýta svona vettvang til lýðræðislegra tilrauna. Því gleymum ekki því fornkveðna: Þjóðin kýs forseta,“ segir Stefán Jón í samtali frá Úganda og vísar þar til bréfs sem hann hefur sent hundruðum manna, facebook-hóps og könnunar. Hringbraut greindi fyrst frá hugmyndum Stefáns Jóns um forsetakosningarnar næsta ár fyrr í dag.