Þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti var ekki um hannaða atburðarás að ræða. Hugmyndin um að hún gæfi kost á sér spratt einfaldlega upp úr grasrótinni og niðurstaðan er kunn.
Þetta sagði Stefán Jón Hafstein, eini Íslendingurinn sem vitað er að horfi til Bessastaða, í samtali við stjórnendur útvarpsþáttarins Harmageddon í gær.
Stefán Jón var með þessum ummælum sínum að svara spurningunni hvort hann færi fram. Svar hans var í samræmi við fyrstu fréttina af áhuga hans og framtaki og fyrsta viðtalinu sem Stefán Jón veitti Hringbraut. Hann sagði ef a.m.k. hluti samfélagsins vildi styðja hann til framboðs myndi hann taka slaginn.
Stefán Jón, sem starfar hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands og er staddur í Úganda þessa dagana, sagðist þó gera sér grein fyrir að skiptar skoðanir væru um hann sem kandídat. „Ég er ekki óumdeildur maður,“ sagði hann í viðtali við Harmageddon. Hann sagðist ekki sjálfur í aðsstöðu til að dæma hvort hann væri „viðkunnanlegur náungi“. Samkvæmt óformlegri athugun Kvikunnar á Hringbraut nýtur Stefán Jón stuðnings um 66% þeirra sem hafa svarað spurningunni hvort Stefán Jón yrði góður forseti. Hafa verður í huga að engir aðrir hafa lýst áhuga á forsetaframboði ef Ólafur Ragnar Grímsson er undanskilinn.
Stefán Jón segir meira um vert að ræða nú hvernig forsetaembætti Íslendingar vilji hafa. Hann hefur hrundið af stað spurningakönnun á facebook og segir að þjóðin verði sjálf að hafa frumkvæði að slíkri umræðu, lítið sé um leiðbeiningar innan opinberra stofnana um hlutverk forseta hér á landi sem stjórnskipunarlega hefur umdeildan málskotsrétt.
Í könnun Stefáns Jóns í opna hópnum á facebook, Hlutverk forseta, er m.a. spurt um málskotsréttinn en könnunina má nálgast hér.