Stefán er látinn

Stefán Friðbjarnarson, fv. bæjarstjóri og blaðamaður á Morgunblaðinu, lést sl. fimmtudag, rúmlega níræður. Hann fæddist 16. júlí 1928 á Siglufirði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru hjónin Friðbjörn Níelsson, skósmiður, kaupmaður og bæjargjaldkeri á Siglufirði, og Sigríður Stefánsdóttir húsmóðir. Morgunblaðið greinir frá.

Stefán lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar og verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1948. Stefán var ritstjóri bæjarblaðsins Siglfirðings 1948-51 og 1966-74, aðalbókari Siglufjarðarkaupstaðar 1951-62, sat í bæjarstjórn á Siglufirði fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1958-74, bæjarritari 1962-66 og bæjarstjóri 1966-74.

\"\"Stefán réðst til Morgunblaðsins þegar hann flutti til Reykjavíkur 1974 og starfaði þar sem blaðamaður til 1998. Hann var lengi umsjónarmaður þingfrétta en sinnti einnig stjórnmálaskrifum. Hann hafði verið fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði frá 1950-74.

Stefán sat í bæjarráði Siglufjarðar og ýmsum nefndum á vegum bæjarfélagsins, í stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga 1966-75 og var formaður þess 1966-1969, ífulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga 1967-70, í stjórn Hafnasambandssveitarfélaga 1969-71 og í stjórn Ríkisspítalanna á árunum 1978-95, varaformaður stjórnar frá 1983. Hann var félagi í Frímúrarareglunni. Árið 1996 var hann sæmdur.

Stefán átti fjölmörg áhugamál og hafði m.a. ánægju af því að setja saman vísur, samdi meðal annars texta við sönglög fyrir karlakórinn Vísi á Siglufirði sem gefin hafa verið út á hljómplötu.

Fyrri kona Stefáns var Hulda Sigmundsdóttir, sem lést 1972, skrifstofumaður og húsmóðir. Þau áttu þrjú börn, Sigmund, f.1949, Kjartan, f. 1951, og Sigríði, f. 1954. Seinni kona Stefáns var Þorgerður Sigurgeirsdóttir, sem lést 2015, starfsmaður Raunvísindastofnunar. Barnabörnin urðu 14 og barnabarnabörnin 22. Eru þá meðtalin börn og barnabörn Þorgerðar, sem hann leit á sem sín.

Þá segir einnig í Morgunblaðinu:

„Morgunblaðið þakkar Stefáni við leiðarlok heilladrjúgt samstarf, stuðning og vináttu og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.“