Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, kveðst ekki vera sérstaklega bjartsýnn á stöðu Icelandair. Stefán Einar skrifar skoðanapistil um málið í ViðskiptaMogganum í dag þar sem hann segir að sennilega þurfi kraftaverk til að kapallinn gangi upp.
Stefán Einar þekkir flugheiminn vel enda skrifaði hann bók um ris og fall WOW air sem kom út í fyrra og vakti talsverða athygli.
„Haustið 2018 háðu forsvarsmenn WOW air hetjulega baráttu við að bjarga félaginu. Allt kom fyrir ekki og á vormánuðum 2019 féll félagið. Stóra verkefnið framan af fólst í að safna að minnsta kosti sex milljörðum en helst tólf með skuldabréfaútgáfu og ætlunin var að nýta þá fjármuni til að tryggja félaginu laust fé til að lifa af erfiðan vetur og gera upp við lánardrottna sem misst höfðu þolinmæðina. Ekki tókst að safna sex milljörðum. Niðurstaðan varð ríflega fimm milljarðar og að stórum hluta komu þeir fjármunir frá fólki sem tengdist félaginu og eina eiganda þess nánum böndum.“
Stefán Einar segir að stjórnvöld hafi ekki þurft að grípa inn í þegar WOW air féll, en meginástæðan á þeim tíma var tilvist Icelandair. Segir Stefán ljóst, nú þegar flugmarkaðurinn er á heljarþröm, að inngrip stjórnvalda sem kallað var eftir á sínum tíma hefði leitt til mikils fjártjóns fyrir ríkissjóð.
„En nú, rúmu ári síðar, er Icelandair í jafn kröppum dansi og WOW á sínum tíma. Félagið telur sig hins vegar þurfa að safna sexfaldri þeirri fjárhæð sem WOW náði að öngla saman og sennilega er það vanmat. Félagið er með örfáar vélar í loftinu, mun færri en WOW þegar það hlaut náðarhöggið. Verkefnið er risavaxið og teygir sig að samningaborðum hér heima og erlendis, m.a. í Seattle í Washingtonríki. Það þarf sennilega kraftaverk til að kapallinn gangi upp.“