Valdaránstilraunin í Tyrklandi og samsæriskenningarnar tengdar henni verða helsta umræðuefnið í Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld, en þess utan verður rætt um aukna einræðistilburði í heiminum samfara vaxandi popúlisma.
Það verða þeir Stefán Einar Stefánsson, ritstjóri Viðskiptablaðs Moggans og Þórir Guðmundsson, þrautreyndur fréttamaður til áratuga sem setjast á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni og greina fréttamál líðandi stundar.
Meðal annarra umræðuefna verður möguleg einangrun Bretlands í Evrópu eftir útgöngu þeirra úr ESB, vaxandi ógn af hryðjuverkum í Evrópu - og loks verður staldrað við heima á Fróni undir lok þáttarins og því velt fyrir sér hvort þenslumerkin séu farin að klingja einhverjum bjöllum.
Ritstjórarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 í kvöld.