Var fjölmiðlakóngur putins myrtur í dc?

Í leyniskýrslu sem bandaríska alríkislögreglan FBI hefur undir höndum er staðhæft að bófar hafi í nóvember 2015 barið til ólífis fyrrum „fjölmiðlakóng“ Vladimirs Putins, Mikhail Lesin. Höfundur skýrslunnar er Christopher Steele sá hinn sami og skrifaði hina frægu skýrslu um aðstoð Rússa við forsetakjör Donalds Trumps.

Í skýrslunni er jafnframt staðhæft að bófahópurinn hafi verið á vegum auðmanns sem sagður er nátengdur Putin.

Lesin fannst illa leikinn á hótelherbergi sínu í Washington DC, en niðurstaða margra mánaða rannsóknar lögreglunnar var að meiðslin mætti rekja til þess að hann hefði dottið oft og illa við langa áfengisdrykkju. Óhóflegt áfengismagn hefði líka stuðlað að láti hans. Dauði hans hefur þótt grunsamlegur ekki síst vegna þess að daginn eftir átti Lesin að bera vitni hjá bandaríska dómsmálaráðuneytinu um innri málefni sjónvarpsstöðvarinnar RT, sem Lesin stofnaði og fjármögnuð er af yfirvöldum í Kreml.

Grunsamlegur dauðdagi Lesins er í sviðsljósinu á ný í kjölfar eiturgasárásarinnar á Sergei Skripal og dóttur hans í Bretlandi og þau stórpólitísku áhrif sem hún hefur haft. Tímaritið BuzzFeed fjallar um málið í dag. Í umfjölluninni kemur fram að samkvæmt skýrslunni hafi bófarnir aðeins haft fyrirmæli um að berja Lesin, en þeir hafi gengið of hart fram. Einnig að um hafi verið að ræða rússneska öryggisfulltrúa, sem hafi verið í aukavinnu fyrir þennan ólígark Putins, sem Steel nefnir í skýrslunni.

En grunsamleg dauðsföll rússneskra embættismanna, pólitíkusa og kaupsýslumanna er auðvitað engin nýlunda. Bresk stjórnvöld kváðust nýlega ætla að fara á ný yfir 14 slík mál, sem sérstaklega var bent á í annarri BuzzFeed úttekt í fyrra.