Staða á flutningskerfi Landsnets var afar viðkvæm eftir óveðrið sem skall á fyrr í mánuðinum. Margar rafmagnslínur urðu illa úti og var Dalvíkurlínan eitt stærsta verkefnið en yfir tuttugu rafmagnsstaurar ýmist brotnuðu eða féllu í storminum. Það var því gífurlegt álag á liðsmönnum björgunarsveita sem og starfsmönnum Landsnets.
Einnig urðu miklar skemmdir á Fljótsdalslínu 4 og skipti gríðarlega miklu máli að koma þeirri línu í lag sem fyrst en álver Alcoa við Reyðarfjörð treysti á að fá raforku með þeirri línu. Stjórnendur Alcoa Fjarðaráls hafa sent frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið vill koma á framfæri þökkum til starfsmanna Landsnets fyrir fumlaus vinnubrögð við að koma Fljótsdalslínu 4 með öruggum og skjótum hætti í gagnið og tryggja þannig afhendingaröryggi á raforku til álversins við Reyðarfjörð. Í tilkynningunni segir enn fremur:
„Landsnet einhenti sér í verkefnið við erfiðar aðstæður og tryggði mannskap, tæki og verktaka til að koma línunni aftur í rekstur á eins stuttum tíma og mögulegt var án þess þó að slá af kröfum um öryggi við krefjandi veðuraðstæður.
Á sama tíma var mikið eftirlit með Fljótsdalslínu 3 til að tryggja að ísing myndi ekki trufla rekstur hennar á meðan lína 4 var úti.
Afhendingaröryggi raforku er afar mikilvægt álverinu sem stólar á að missa ekki niður straum en slík truflun hefur áhrif á stöðugleika og framleiðslu.“
Kristjón Kormákur