Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta hefur tekið við því starfi að nýju.
Stjórn og starfshópar Stígamóta hafa tekið umræðu um neikvæða starfsupplifun af fyllstu alvöru. Í kjölfar þeirrar umræðu var leitað til vinnustaðalögfræðings og Vinnueftirlitsins.
Ákveðið er að Stígamót fylgi ráðleggingum þeirra um faglega vinnubrögð í einu og öllu.
Í ljósi niðurstaðna þykir stjórn Stígamóta það hafið yfir allan vafa að traust og trúnaður og starfsánægja ríkir meðal starfsfólks Stígamóta.
Ekkert gefur til kynna að einn eða fleiri starfsmenn Stígamóta sýndu starfsfólki samtakanna ráðríki og yfiurgang eða aðra óviðeigandi hegðun.
Stjórn Stígamóta í samráði við starfshópinn óska eftir því að Guðrún Jónsdóttir taki við hlutverki talskonu Stígamóta á ný.
Guðrún hefur samþykkt að verða við þeirri ósk.
Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita samtökin fólki aðstoð sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi.
Nánar www.stigamót.is