Forsvarsmenn bandarísku verslunarkeðjunnar Costco hafa skrifað undir samning um kaup á húsnæði við Kauptún í Garðabæ. Stefnt verður að opnun sumarið 2016, en fyrst um sinn verða 160 starfsmenn ráðnir til starfa. Stefnt er að því að þeir verði 250 talsins eftir þrjú ár.
Í samtali við Fréttablaðið segir Steve Pappas, svæðisstjóri Costco í Bretlandi og á Íslandi að Costco muni verða frábrugðna öðrum lágvörumatverslununum á Íslandi að því leytinu til að verslunin verði einungis í Kauptúni. Ekki er stefnt að því að bæta við verslunum með tímanum. Costco muni þó keppa við aðrar verslanir um verð og vöruúrval, en einungis meðlimir geta verslað við verslunina. 80% af öllum gróða Costco kemur frá slíkum meðlimagjöldum, en meðlimir á heimsvísu telja nú um 64 milljónir. Talið er að 90% meðlima endurnýja áskrift sína að ári.
Áhugavert verður að sjá hvernig íslenskir neytendur taka í stórverslunina, en Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar sagði í samtali við Fréttatímann að koma verslunarinnar til landsins verði vonandi til þess að lækka verð og auka vöruúrval. „Ég held að þetta sé fyrst og fremst gott fyrir íslenska neytendur.\"