Starfsmanni skrifstofu forseta heimilað að snúa aftur til starfa - beitti tvær konur kynferðislegu áreiti - „sekur um óþolandi athæfi“

„Vegna fréttar á vef Fréttablaðsins í dag um vinnu- og námsferð starfsmanna embættis forseta Íslands til Parísar 13.-16. september síðastliðinn skal þetta tekið fram: Í ferðinni varð einn starfsmaður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt.“

Þannig hefst tilkynning frá forseta Íslands vegna starfsmanns skrifstofu hans sem beitti tvær konur kynferðislegri áreitni sem hann vann með þar. Annað brotanna átti sér stað í París. Forsetinn segir að eftir heimkomu hafi starfsmaðurinn verið sendur í leyfi og hafi forsetaritari einnig veitt honum skriflega áminningu.

„Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu.“

Að sögn forsetans hefur starfsmaðurinn beðið konurnar afsökunar á hegðun sinni og leitað sér sérfræðiaðstoðar. Eftir þessar aðgerðir var starfsmanninum heimilt að snúa aftur til stafa hjá skrifstofu forseta Íslands.

„Auk þess var starfsmanninum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Í framhaldinu hefur viðkomandi starfsmaður beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar. Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.“