Langflestir starfsmenn og kjörnir fulltrúar í borgarráði telja að einelti viðgangist þar. Þetta kemur fram sálfélagslegu áhættumati á starfsumhverfi starfsfólks sem starfar á vettvangi borgarráðs. Niðurstöður voru kynntar í borgarráði í dag en sálfræðistofan Líf og sál sá um matið.
Rætt var við fjórtán starfsmenn sem reglulega koma fyrir borgarráð og sex kjörna fulltrúa. Viðtölin fóru fram í ágúst og til októbermánaðar 2020. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur Helga Björg Ragnarsdóttir hætt störfum sem skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og segir hún það vera vegna stöðugra persónuárása af hálfu Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins.
Í kynningu sem borgarráð fékk á niðurstöðunum í dag segir að samskipti í borgarráði hafi gengið mjög nærri starfsmönnum og kjörnum fulltrúm. Ekki hafi tekist að tryggja sálfélagslegt öryggi starfsmanna á þessum vettvangi og margir hafi upplifað mikinn kvíða, sérstaklega fyrri tvö árin en það hafi þó lagast.
„Lang flestir viðmælendur telja að einelti hafi viðgengist á vettvangi borgarráðs. Lýsingarnar á framkomu og hegðun falla undir skilgreiningu á einelti á vinnustað; endurtekin neikvæð/ótilhlýðileg framkoma á vinnustað sem erfitt er að verjast,“ segir í kynningunni. Alvarlegast í þessu sé að starfsmenn séu lokaðir inni í aðstæðum sem þeir hafa enga möguleika á að koma sér út úr nema með breytingu á verklagi/skipuriti og verður það til þess að varnarleysi þeirra er algjört í þessum aðstæðum.
„Það hlýtur að skapa mikið varnarleysi hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar að upplifa að hægt sé að niðurlægja einstaklinga með nafni í fjölmiðlum og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hér þarf að gera mikla bragarbót og er það í verkahring æðstu stjórnenda borgarinnar að skapa skjól og öryggi fyrir sína starfsmenn, svo þeir geti óttalaust sinnt sínum skyldum,“ segir í einnig í niðurstöðu matsins og að það verði að vera mjög skýrt að það sé ekki í verkahring stjórnmálamanna að skipta sér af starfsmannamálum Reykjavíkurborgar né faglegum verkferlum og vinnubrögðum. „Þó að nokkur vinna hafi verið unnin þarf að halda áfram að skerpa á þeim mörkum sem þurfa að vera og mæta með skýrum hætti niðurlægjandi framkomu og árásargirni í garð starfsmanna.“
Bókanir gengu á víxl
Á borgarráðsfundi í dag flugu bókanir á víxl þegar niðurstöðurnar voru kynntar. Sagði Vigdís Hauksdóttir í bókun sinni að kynningin hefði verið merkt sem trúnaðarmál.
„Þegar til dagskrárliðarins kom á borgarráðsfundi var trúnaði aflétt en síðdegis daginn áður hafði embættismaður borgarinnar tjáð sig um könnunina og þar með rofið trúnað því fram kom í kynningunni að búið væri að ræða við þá sem komu fyrir Sálfræðiþjónustuna Líf og sál, þ.e.a.s. embættismenn. Þetta eru óboðleg vinnubrögð.“
„Í borgarráði sitja 10 kjörnir fulltrúar og því er haldið fram að kynningin sé ópersónugreinanleg. Það varpar ljósi á þá alvarlegu stöðu að enn er óútkljáð kvörtunarmál vegna þessa máls hjá Persónuvernd og svo mikið lá á að koma þessu máli á framfæri að meirihlutinn gaf sér ekki tíma til að bíða eftir úrskurði stofnunarinnar eða eins og segir: „Ákveðið að kynna nú, þó að Persónuvernd hafi ekki úrskurðað vegna kvörtunar sem barst vegna athugunar.“ Með þessu hunsar Reykjavíkurborg enn á ný eftirlitsstofnanir ríkisins,“ sagði Vigdís.
Lögðu þá fulltrúar meirihlutans fram gagnbókun. „Það er kolrangt að „embættismaður“ hafi rofið trúnað á niðurstöðum á sálfræðilegu mati á starfsumhverfi borgarráðs enda hefur umræddur starfsmaður ekki séð niðurstöðurnar.“
Var því næst vitnað í orð Helgu á Facebook í gær þar sem hún ræddi útttektina, án þess að vitna í niðurstöður hennar: „Í ágúst sl. var greint frá því að gera ætti úttekt á sálfélagslegum áhættuþáttum fyrir það starfsfólk sem situr eða þarf reglulega að taka sæti á fundum borgarráðs í kjölfar ábendinga um starfsumhverfi þess hóps. Ég vona svo sannarlega að kjörnir fulltrúar taki niðurstöður þeirrar úttektar alvarlega og ráðist í nauðsynlegar og löngu tímabærar úrbætur til að tryggja heilnæmt og öruggt starfsumhverfi fyrir okkur öll.“ Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins velur að snúa öllu á haus þrátt fyrir að vera leiðréttur um það sem er satt og rétt.“
Sagði slæma andann ekki hafa komið með núverandi minnihluta
Þá lagði Vigdís fram gagnbókun við gagnbókun meirihlutans. Sagði hún þar að komið hefði fram í kynningunni að embættismenn væru búnir að fá kynningu á niðurstöðum könnunarinnar en ekki borgarfullrúar.
„Í öllu þessu máli er leikurinn afar ójafn. Má segja að þeir 10 borgarfulltrúar sem sitja í borgarráði hafi ekki getað borið hönd fyrir höfuð sér. Þessi leikur er og verður alltaf ójafn og minnt er á að mikil eineltismenning hefur ríkt í Ráðhúsinu allt frá árinu 2010 og spannar því þrjú kjörtímabil.
Sá slæmi andi sem einkennt hefur störf borgarráðs og borgarstjórnar kom ekki í Ráðhúsið með þeim aðilum sem sitja í minnihluta nú,“ sagði Vigdís.
Segir hún til vitnis um það upptökur frá fundi borgarstjórnar frá lokum síðasta kjörtímabils. „Þegar einn fráfarandi borgarfulltrúi sá sig knúinn til að upplýsa um eineltismenningu meirihlutans. Einnig er minnt á ummæli annars kjörins fyrrverandi borgarfulltrúa frá kjörtímabilinu 2010-2014 þar sem hann kom fram og greindi frá sjálfsvígshugmyndum sínum vegna grófs eineltis frá meirihlutanum. Er ekki komið mál að linni fyrir borgarstjóra og meirihlutann.“