Starfsmaður í Kringlunni smitaður

Starfsmaður í H&M í Kringlunni hefur greinst smitaður af Covid-19. Greint er frá þessu á vef Kringlunnar.

Verslun H&M í Kringlunni er lokuð í dag meðan unnið er að sótthreinsun og allir starfsmenn hafa verið sendir í sóttkví næstu sjö daga.