Starfsmaður í klettaskóla greindist með berkla

Starfsmaður í Klettaskóla í Reykjavík hefur greinst með berkla. Allir starfsmenn og nemendur skólans þurfa nú að gangast undir læknisskoðun til að ganga úr skugga um að þeir hafi ekki smitast sömuleiðis. RÚV.is greinir frá.

Árni Einarsson, skólastjóri Klettaskóla, segir í samtali við RÚV að starfsmaðurinn hafi leitað til læknis og þar hafi berklasmit komið í ljós.

Hann segir að í kjölfarið hafi farið af stað ferli þar sem gripið er til ákveðinna varúðarráðstafana. Sóttvarnarlæknir hafi sent skólanum póst um málið og í dag og næstu daga verði starfsmenn og nemendur skoðaðir af lækni.

„Þetta hljómaði ekki vel í byrjun en mér skilst að hættan sé ekki mikil og þetta smitist ekki mjög auðveldlega, sem betur fer,” segir Árni. Berklabakterían er smitandi en berst ekki jafn auðveldlega milli fólks eins og til dæmi inflúensu- og mislingaveirur. Þó er hún líklegri til að smitast milli einstaklinga sem eru í nánum samskiptum, t.d. fjölskyldumeðlima og vinnufélaga, og því er nauðsynlegt að skoða alla starfsmenn og nemendur skólans.