Starfshópur um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum skipaður

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp vegna átaks til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Starfshópnum er ætlað að gera aðgerðaráætlanir vegna sýklalyfjaónæmra baktería í dýrum, sláturafurðum og matvælum. Jafnframt að setja fram mismunandi valkosti við stefnu sem miðar að því að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.

Framangreind vinna er hluti af átaki til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi sem Kristján Þór og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Jafnframt er þessi vinna sögð vera hluti af aðgerðaáætlun um að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu sem unnið er eftir í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Markmið starfshópsins er að skila matsgerð um mismunandi valkosti við stefnu sem miðar að því að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur

„Þessi hópur hefur þýðingarmikið hlutverk í því átaki sem við heilbrigðisráðherra settum af stað í febrúar síðastliðinn. um að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Það er skýr stefna þessarar ríkisstjórnar að Ísland á að vera fararbroddi í aðgerðum á þessu sviði og með skipan þessa hóps erum við að fá okkar færustu sérfræðinga til forystu í þeirri vinnu,“ segir Kristján.