Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur lýst yfir fullum stuðningi við fyrirhugað verkfall sem Efling hefur boðað hjá hótelþernum þann 8. mars næstkomandi. Í fréttatilkynningu hvetur SGS jafnframt félagsmenn innan aðildarfélaga sambandsins til þess að ganga ekki í störf félagsmanna Eflingar komi til verkfalls.
Tilkynningin í heild sinni:
„Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við verkfall félaga okkar í Eflingu sem boðað er 8. mars nk. Um leið hvetjum við félagsmenn innan aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins til þess að ganga alls ekki í störf félagsmanna Eflingar komi til verkfalls.“
Niðurstöðu félagsdóms að vænta á morgun
Samtök atvinnulífsins kærðu atkvæðagreiðslu vegna verkfallsboðunarinnar til félagsdóms. SA telja atkvæðagreiðsluna ólöglega og krefjast þess að verkfallið verði dæmt ólögmætt.
Fyrir félagsdómi deila SA og Efling um tvennt. SA telur að aðeins þeir sem verkfallið nái til eigi að geta kosið um það, þ.e. einungis hótelþernur, en Efling telur að allir þeir sem falla undir tiltekinn kjarasamning innan ferðaþjónustunnar, þar á meðal starfsmenn í veitinga- og gistihúsageiranum, megi kjósa.
Þá er deilt um hvers lags atkvæðagreiðslu hafi verið að ræða. SA telur atkvæðagreiðsluna vera með yfirbragði kjörfundar, þar sem gildi 20 prósent lágmarksþátttaka, en Efling túlkar hana sem póstatkvæðagreiðslu, þar sem er engin lágmarksþátttaka. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni um verkfall hótelþerna var tæplega 11 prósent.