Starfsfólki misbýður fréttaumfjöllun

Starfsfólki í þjóðgarðinum á Þingvöllum er misboðið vegna fréttaumfjöllunar síðustu daga um lélega salernisaðstöðu á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá starfsfólki. Þingvallanefnd hefur ákveðið að leggja af salernisgjald í þjóðgarðinum þar sem innheimtan þykir hefta ferðamenn of mikið. 

Í tilkynningunni segir að í þjóðgarðinum séu alls 56 salerni. 32 þeirra séu á því svæði sem kallast þinghelgin, en þar fara flestir ferðamenn um og 21 salerni sé í og við tjaldstæðið hjá Þjónustumiðstöðinni. Fram kemur að salernin séu öll reglulega yfirfarin og þeim vel sinnt, en ásamt því fari landverðir og starfsfólk reglulega yfir þau svæði sem telja má afsíðis, svo sem trjárunna og skógarlundi. 

Starfsfólk furðar sig á umræðunni síðustu daga og segir ljóst að nálægð við salerni breyti ekki öllum ósiðum ferðamanna, sem láta sumir ekkert stoppa sig við að gera þarfir sínar utandyra. 

Í Fréttablaðinu í morgun kom fram að salernisgjald yrði lagt af í Þingvallaþjóðgarði. Þingvallanefnd hafi ákveðið að hætta innheimtunni sökum þess að illa gangi að rukka inn á salernin á Hakinu. Þar virðast ýmsir ferðamenn gera þarfir sýnar utandyra í stað þess að greiða 200 krónur fyrir hrein salerni. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og formaður Þingvallanefndar sagði í samtali við Fréttablaðið salernismálin víða um land vera mikið áhyggjuefni. Hún segist treysta samhent átak ríkis, sveitarfélaga og þjónustuaðila við að finna góða lausn við vandanum.