Á fjórða hundrað starfsmanna var sagt upp hjá WOW air um miðjan desember. Nokkrir þeirra eiga það sameiginlegt að hafa verið í fæðingarorlofi þegar þeim sem var sagt upp störfum. Almennt er ólöglegt að segja fólki í fæðingarorlofi upp störfum nema gildar ástæður séu gefnar með skriflegum rökstuðningi. Fréttablaðið.is greinir frá.
VR hefur nokkur mál til skoðunar hjá sér um þessar mundir þar sem starfsmenn í fæðingarorlofi sem var sagt upp leita réttar síns.
„Meginreglan er sú að það er bannað að segja fólki upp í fæðingarorlofi. Það er meginreglan, en það er heimilt ef gildar ástæður eru fyrir hendi eins og lögin segja, þá þarf þennan skriflega rökstuðning. Það er verið að kalla eftir honum og bíða“, segir Stefán Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri VR í samtali við Fréttablaðið.
Hann vísar þar til 30. greinar laga um fæðingarorlof, þar sem segir að óheimilt sé að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs eða er í fæðingar- eða foreldraorlofi nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni.