Áhorfendur Hringbrautar fá að kynnast margvíslegri og merkilegri starfsemi Íslandsstofu í þættinum Atvinnulífið á sjónvarpsstöðinni klukkan 20:30 í kvöld, en stofan hefur heldur betur komið Íslandi á kortið á undanliðnum árum.
Það er Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu sem leiðir áhorfendur um húsakynni stofunnar og segir frá spennandi verkefnum hennar heima og erlendis, en Jón hefur gríðarlega reynslu af þeirri markaðssetningu sem einkennir verksvið stofunnar.
Þátturinn, sem er í umsjá Sigurðar K. Kolbeinssonar, var áður á dagskrá Hringbrautar á síðasta ári, en ný þáttaröð hans byrjar í næsta mánuði.