Starfsemi neyðarlínunnar skoðuð

Starfsemi Neyðarlínunnar verður skoðuð í sjónvarpsþættinum Atvinnulífið á Hringbraut í kvöldi, en þar verða forsvarsmenn hennar teknir tali og því kynnst hvernig dagurinn gengur fyrir sig á þessum óvenjulega vinnustað.

Starfsemi Neyðarlínunnar er allt í senn lífsnauðsynleg, viðkvæm og fjölþætt en hjá henni starfar þrautþjálfað starfsfólk sem bregst við beiðni um aðstoð allan sólarhringinn. Þær beiðnir geta verið af öllu tagi eins og dæmin sanna.

Neyðarlínan rekur samhæfða björgunarmiðstöð í Skógarhlíðinni í Reykjavík, annast rekstur fjarskiptakerfis og vaktstöð siglinga og á í nánu samstarfi við lögreglu, slökkvilið, björgunarsveitir og Landhelgisgæsluna.

Þátturinn um Neyðarlínuna er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld og endursýndur strax klukkan 23:00.

Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson.