Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld en þá verður fjallað um stöðu eins stærsta verkefnis sem íslenska ríkið hefur ráðist í en það er bygging nýs Landspítala á komandi árum. Eins og kunnugt er samþykkti Alþingi að nýr Landspítali skuli rísa við Hringbraut og hófust framkvæmdir við fyrsta áfanga á endurskipulagðri lóð Hringbrautar í árslok 2015 en það er bygging sjúkrahótels sem tekið verður í notkun á næstu mánuðum. Samþykki Alþingis kom til að undangengnu sameiginlegu samþykki 7 sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess en það er ein af þeim forsendum sem verða að vera fyrir hendi til að slík framkvæmd geti orðið að veruleika. Að sögn hönnuða og arkitekta sem hönnuðu hinar nýju byggingar eiga framkvæmdir að hefjast næsta vor þannig að nýr meðferðarkjarni ætti að geta tekið til starfa eftir 6-7 ár. Sú bygging verður yfir 60.000 m2 að stærð og hluti af þeim 77.000 m2 sem áætlað er að byggja í fyrsta áfanga að nýjum Landspítala, þ.m.t. sjúkrahótel og rannsóknarhús.
Gagnrýnisraddir hafa komið fram vegna staðarvalsins en því er svarað af fjölmörgum málsmetandi aðilum sem rætt er við í þættinum þeirra á meðal Landlækni, Háskólarektor, arkitektum, verkfræðingum, forstjóra Skipulagsstofnunar og fleiri aðilum sem hafa kynnt sér málið. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason. Þetta er 91. þáttur Atvinnulífsins sem upphaflega hóf göngu sína á ÍNN vorið 2014 en fluttist yfir á Hringbraut í febrúar 2015 þegar sjónvarpsstöðin tók til starfa.