Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og sama embætti á Suðurnesjum koma lakast út úr könnun Starfsmannafélags ríkisstofna á starfsanda, kjörum og vinnuskilyrðum, en félagið velur árlega Stofnun ársins. Af fámennum stofnunum kemur Lögregluskóli ríkisins lakast út.
Niðurstöðurnar eru afrakstur könnunar sem SFR lagði fyrir starfsmenn en alls bárust 2400 svör. Þær gefa til kynna að best sé að vinna hjá Ríkisskattstjóra af þeim stofnunum sem eru með 50 starfsmenn eða fleiri. Af meðalstórum stofnunum kom Menntaskólinn á Tröllaskaga best út og Héraðsdómur Suðurlands er starfsfólki mest að skapi af stofnunum með færri en 20 starfsmenn.
Í sérriti SFR kemur fram að niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins veiti athyglisverðar upplýsingar um ánægju og líðan starfsmanna á vinnustað og gefi sannarlega tilefni til þess að skoða þær nánar.
Spurningar könnunarinnar skiptast niður í átta þætti; trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægju og stolt.