Sindri Sigurgeirsson, forAmaður Bændasamtakanna segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að bændur hafi gengið út frá því að þáverandi landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra standi við gerða samninga og ekki verði gerðar neinar grundvallarbreytingar á búvörusamningunum á Alþingi í lok sumar.
Í máli Sindra á Hringbraut í kvöld kemur fram að ýmislegt bendi núna þó til að pólitískur stuðningur flokka ráðherranna tveggja sé ekki fyrir hendi og þeir hafi ekki það umboð sem þeir þurfi. Sindri bendir á að bændur hafi samþykkt í atkvæðagreiðslu þessa samninga og ef eitthvað annað kemur út úr þinginu verði að semja upp á nýtt. Útilokað sé að stytta gildistímann miðað við hvernig hvernig samingurinn er uppbyggður.
Alþingi á síðasta orðið
Sigurður Ingi og Bjarni Benediktsson undirrituðu nýja búvörusamninga ásamt forystu bænda í febrúar. Samningurinn er í fyrsta sinn gerður í heild um starfsskilyrði við framleiðslu grænmetis, kindakjöts og nautgripaafurða. Samningarnir kalla þó á að Alþingi samþykki lagabreytingar. Atvinnuveganefnd Alþingis fjallar nú um málið og er öruggt að gerðar verði breytingar þar miðað við orð formanns nefndarinnar, Jóns Gunnarssonar. Hann hefur sérstaklega tekið fram að tvö endurskoðunarákvæði þurfi að herða. Samningurinn hefur því ekki enn öðlast gildi.
Skaði hagsmuni neytenda
Nýjir búvörusamningar eru helst umdeildir vegna þess hve gildistími þeirra er langur eða til 2026 og nær því yfir tvö og hálft kjörtímabil. Sindri bendir þó á að tvö endurskoðunarákvæði sé í samningnum á þeim tíma. Þá hefur Samkeppniseftirlitið í sinni umsögn sagt að taka þurfi málið til gagngerrar endurskoðunar til að tryggja almannahagsmuni. Í umsögn þessi segir orðrétt: „Það er eindregið mat Samkeppniseftirlitsins að frumvarpið muni að óbreyttu skaða bæði hagsmuni neytenda og bænda“. Þá hefur málefni Mjólkursamsölunnar kannski áhrif á viðhorf til samningsins en samkeppniseftirlitið telur að einokunarstaða Mjólkursamsölunnar verði fest enn frekar í sessi. Þar með verði undanþága mjólkurframleiðenda frá samkeppnislögum enn mun meiri en þekkist á öðrum norðurlöndum eða á EES svæðinu. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, s.s. Guðlaugur Þór Þórðarsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir hafa verið andvígir samningnum og þá hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir viðskiptaráðherra sagst hlynnt því að MS verði ekki lengur undanþegið samkeppnislögum.