Síðasta árið hafa greiðslukortaþjófar herjað á Strætó BS. Hafa þeir valdið tjóni yfir tvær milljónir og hafa þeir síðustu sex mánuði náð 1.9 milljónir króna. Vefsíðan Strætó BS hefur verið ótrygg og aðferðin sem svikahrapparnir hafa nýtt sér er að kaupa strætókort með stolnum kortaupplýsingum en kortin eru bæði innlend og erlend. Flest kortin gilda í þrjá mánuði. Ódámarnir gera sér síðan ferð í Mjódd eða uppá Hestháls, ná í kortin og selja þau áfram. Einnig hefur Hringbraut heimildir fyrir því þorpararnir hafa nýtt sér vini og vandamenn til að leysa kortin út.
Þrátt fyrir að þrjótarnir hafi í sex mánuði svindlað á Strætó hefur ekki verið lögð fram kæra. Þá hefur tafist í nokkra mánuði að tryggja öryggi á sölusíðu strætó.
Í maí mánuði náðu þjófarnir 348,200 krónum. Í júní var upphæðin 377,503 krónur og í júní 195,650 krónur. Þrátt fyrir að þarna hafi tæplega milljón hafi verið stolið var ekkert gert til að bæta eða tryggja öryggi á sölusíðu Strætó. Þá voru upplýsingar um IP tölur né þjófnaðurinn sjálfur ekki kærður til lögreglu.
Undir lok Ágúst var loks ákveðið að virkja svokallað 3d Secure kerfi en þá ákvörðun má í raun rekja til innleiðinga á nýjum reglum Evrópusambandsins um sterka auðkenningu á greiðslukortum.
Markús Vilhjálmsson sölustjóri hjá Strætó BS sagði fyrst í samtali við Hringbraut:
„Undanfarið virðist hafa komið upp smá bylgja í þessu. Það hefur komið upp það sem virðist vera stolin kreditkort. Við höfum verið að flagga þessi kort í búðinni.“
Markús bætti við að nú væri verið að innleiða sterka auðkenningu eftir hinum nýju reglum frá Evrópusambandinu. Vonast hann til að því verði lokið seinna í mánuðinum en vinna við það hófst eins og áður segir í haust.
Blm: Er sérstök ástæða að þið tókuð þetta ekki upp?
„Nei, það liggur eiginlega hjá þeim sem þróuðu síðuna fyrir okkur.“
Blm: Við höfum heimildir fyrir því að tjónið sé talið í milljónum?
„Það kom sprengja í þessu núna, þá fórum við beint af stað að setja þetta gang að innleiða þetta sem fyrst,“ svaraði Markús.
Aðspurður hvað hefði valdið töfinni svaraði hann því til að um forritunarflækju væri að ræða.
Blm: Er búið að tilkynna þetta til lögreglunnar?
„Þetta kom til okkar í gegnum Borgun, þá endurgreiðslukröfurnar. Vandamálið er það að við erum með svo litlar upplýsingar um hverja og eina færslu þegar hún kemur inn í búðina,“ svaraði Markús.
Aðspurður hvort stjórnin hefði ekki séð ástæðu til þess að rekja IP tölurnar kvaðst hann ekki viss um að stjórninni væri kunnugt um málið en sagði að ekki hefði verið reynt að rekja tölurnar né koma upplýsingum til lögreglu svo honum væri kunnugt um.
Blm: Er einhver ástæða fyrir því?
„Ekkert sem ég get eitthvað á þessari stundu sagt.“
Blm: Var stjórn tilkynnt um þetta?
„Nú veit ég það ekki klárlega,“ svaraði Markús og bætti við að engin ákvörðun, svo honum væri kunnugt um, hefði verið tekin innan stjórnarinnar.
Vinna hófst formlega 28. október
Þann 27. ágúst var loks byrjað að hafa samband við greiðsluhirða. Þann 15. október var staðan tekin aftur á verkefninu en engin vinna var hafin í forritun. Loks er það samþykkt þann 28. október að formlega hefja vinnu við að laga vefsíðu strætó til að koma í veg fyrir frekari svindl. En á þessum rúmum tveim mánuðum sem tók að taka ákvörðun um málið var búið að svindla mörg hundruð þúsundum króna af opinberu fé.
Samkvæmt svari við fyrirspurn Hringbrautar um málið segir Strætó BS að vinna við að laga heimasíðu fyrirtækisins verði vonandi lokið strax eftir áramót. Þangað til geta svindlarar haldið iðju sinni áfram. Þá segir upplýsingarfulltrúi Strætó að ein af átæðum fyrir því að verkefnið sé búið að taka þennan tíma sé vegna þess að fyrirtækið sem þjónustar Strætó sé að gera þetta í fyrsta skipti.
Visa/mastercard Endurkröfur undanfarna 6 mánuði |
|
|
Mánuður | Upphæð |
|
Sept okt | 582,250 kr |
|
Ágúst | 404,100 kr |
|
Júlí | 195,650 kr |
|
Júní | 377,503 kr |
|
Maí | 348,200 kr |
|
Samtals síðustu 6 mánuði: | 1,907,703 kr |
|