Fimm manna þjófahópur stakk af með hálfan milljarð í reiðufé úr flugvél Lufthansa eftir skyndirán á helsta fragtflutningflugvelli Brasilíu á sunnudag.
Peningarnir (fimm milljónir dala) voru undir strangri gæslu öryggisfyrirtækisins Brinks, en þjófunum bíræfnu tókst að ógna öryggisvörðunum og flýja á pallbíl, sem merktur var öryggisfyrirtæki flugvallarins. Þeir hafa ekki fundist. Engan sakaði í ráninu, sem tók aðeins sex mínútur. Flugvélin var á leið til Sviss með peningana.