Flugeldum að verðmæti einnar milljóna króna var stolið í nótt frá björgunarsveitinni Bróðurhönd. Einar Viðar Einarsson, formaður Bróðurhandar segir í samtali við vef Fréttablaðsins:
„Við erum náttúrulega björgunarsveit af minnsta skalanum og erum fámenn hérna austur í sveit þannig að sem betur fer liggjum við nú ekki með milljóna krónu birgðir af flugeldum.“
Þá segir Einar Viðar að farið hafi verið inn í nokkur hús á milli 22:30 og 09:30 í nótt og eingöngu stolið flugeldum. Þá segir á Facebook-síðu sveitarinnar:
„Ekki skemmtileg aðkoma hjá okkur í morgun.“
Einar segir í samtali við Fréttablaðið.
„Öll önnur verðmæti virðast hafa verið látin vera. Söluverðmæti flugeldanna hafa verið einhvers staðar upp undir milljón og eina tjónið sem varð er útihurðin sem þarf að endurnýja. Við erum búnir að tilkynna þetta og lögreglan er komin í rannsókn málsins.“
Hér má lesa umfjöllun Fréttablaðsins í heild sinni.