Stafir bjóða óverðtryggð lán

Sjóðfélögum Stafa, sem er í hópi stærstu lífeyrissjóða landsins bjóðast innan tíðar bæði óverðtryggð og verðtryggð lán til húsnæðiskaupa að uppfylltum skilyrðum í greiðslumati. Sjóðurinn fylgir þannig fordæmi Lífeyrissjóðs verslunarmanna, svo dæmi sé tekið.

Að því er fram kemur í fréttabréfi Stafa hefur sjóðurinn ekki lánað félögum sínum óverðtryggt, en nú er í bígerð að bjóða líka upp á óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum á sambærilegum kjörum og bjóðast hjá öðrum lífeyrissjóðum.

Í fréttabréfinu segir að lítil spurn hafi yfirleitt verið eftir óverðtryggðum sjóðfélagalánum undanfarin ár, en áhugi fyrir þeim hafi greinilega aukist upp á síðkastið. Stjórn Stafa vilji bregðast við þeim óskum.