Valgerði Guðsteinsdóttur, einu atvinnuhnefaleikakonu okkar Íslendinga, hefur boðist að stíga inn í WBC heimsmeistarabardaga næsta laugardagsvöld gegn helstu vonarstjörnu norðmanna, Katarinu Thanderz.
Í tilkynningu frá umboðsskrifstofu Valgerðar segir að fyrirhugaður andstæðingur norsku kempunnar hafi dottið út núna um helgina og þar með hafi byrjað leit að öðrum andstæðingi sem gæti stigið inn með svo stuttum fyrirvara. Leitin hafi náð alla leið til Íslands og Valgerður svarað kallinu samstundis.
Valgerður er 32 ára og sem fyrr segir eina atvinnukonan í hnefaleikum hér á landi. Hún er enn ósigruð og frammistaða hennar í þeim þremur bardögum sem hún hefur keppt til þessa hefur ekki farið framhjá neinum í hnefaleikaheiminum. Valgerður barðist seinast 21. október síðastliðinn gegn sterkum andstæðingi, hinni Tékknesku Dominika Novotná og sigraði hana með miklum yfirburðum og einróma dómaraúrskurði. Valgerður kom algjörlega ósködduð út úr þeirri viðureign og langaði til að komast sem allra fyrst aftur í hringinn. Hún hefur haldið sér í keppnisformi allar götur síðan og hefur verið vakandi fyrir því að næsta tækifæri gæti komið með skömmum fyrirvara. Það varð raunin, en tækifærið sem á endanum opnaðist var engin smásmíði, eins og komist er að orði í tilkynningu frá umboðsskrifstofu kempunnar.