Vonast eftir samþykkt samninga

Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR kvaðst í samtali við Sigurð K. Kolbeinsson í þættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld vonast innilega eftir því að félagsmenn sínir samþykktu nýgerða samninga við Samtök atvinnulífsins.


Í þættinum var fjölþætt starfsemi VR skoðuð en það er stærsta stéttarfélags landins og var upphaflega stofnað sem Verslunarmannafélag Reykjavíkur árið 1891. Félagsmenn eru nú orðnir 30 þúsund talsins og veitir VR þeim margvíslega og fjölbreytta þjónustu á hverjum degi eins og vel kom fram í þættinum í gær. 


Ólafía sagði í þættinum að hún væri ánægð með nýja kjarsamninga félagsins við SA en þeir væru bæði ábyrgir og hagfelldir fyrir VR og þjóðina. Hún vonaðist sem fyrr segir eftir samþykkt þeirra en atkvæðagreiðsla um þá, sem verður rafræn, hefst eftir viku á meðal félagsmanna.


Atvinnulífsþáttunum á Hringbraut er ætlað að varpa ljósi á sögu og sérstöðu fyrirtækja og félagasamtaka í landinu sem flestir landsmenn hafa ekki kynnst nema af afspurn. Með sýningu þeirra hefur verið varpað góðu ljósi á þann fjölbreytileika sem er að finna í íslensku atvinnulífi og þau margþættu verkefni sem þau sinna hringinn í kringum landið. Og VR er í reynd stórfyrirtæki ef út í það er farið eins og vel kemur fram í þætti kvöldsins.


Þáttinn um VR í gær má nálgast í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.