Skemmtiferðaskipið MSC Meraviglia kemur til Reykjavíkur í sumar og er langstærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Reykjavíkur í brúttótonnum talið. Skipið er smíðað í Frakklandi og er nýtt, var tekið í notkun í fyrra. MSC Meraviglia er 167.600 brúttótonn og 315 metrar að lengd, með farþegarými fyrir rúmlega 4.500 farþega og í áhöfn eru 1.540 manns. Káetur og svítur farþeganna eru á 14 hæðum. MSC Meraviglia mun koma þrisvar yfir sumarið, í lok maí, lok júní og í byrjun ágúst.
Þetta má lesa á vefsíðu Faxaflóahafna og einnig að sú þjóð sem aðallega komi með skemmtiferðaskipum séu Þjóðverjar en þar á eftir Bandaríkjamenn.