Viðbúið er að Skaftárhlaupið sem nú er að ná hámerki verði það allra stærsta frá því mælingar hófust, en nú þegar hefur rennslu árinnar undan vestanverðum Vatnajökli vaxið úr 140 í 3000 rúmmetra á sekúndu.
Að sögn þeirra sem virt hafa hamfarirnar fyrir sér er um mikið sjónarspil að ræða. Ekki einasta lækkar fargið ofan á katlinum hratt, líklega um 150 metra, heldur fossar áin undan jökulsporðinum af slíkum krafti að heilu jakastykkin taka á rás niður árfarveginn.
Hættuástandi hefur verið lýst yfir vegna vatnavaxtanna, en flóðið hefur rutt sér leið niður í Hverfisfljót er brúin yfir það talið vera í hættu. Þá er ljóst að tún bænda á svæðinu verða illa leikin eftir flóðið.
Ríkislögreglustjóri ráðleggur fólki að halda sig frá hamfarasvæðinu, en brennisteinsmengun getur skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum, auk þess sem árnar þar sem flóðið fer um geta flætt fyrirvaralaust yfir bakka sína.