Ný lággjaldahótelkeðja mun hefja rekstur í upphafi næsta árs á Bretlandseyjum. Um er að ræða nýjasta útspil Whitbread, eiganda hótelkleðjunnar Premier Inn, sem reynir nú að fóta sig eftir að hafa selt kaffihúsarisann Costa Coffee til Coca-Cola fyrr á þessu ári.
Nýju hótelin verða rekin undir nafninu Zip by Premier Inn og verða þau staðsett í útjaðri stórborga og bæja. Nóttin mun kosta frá 19 pundum, um 2900 krónum, en lægsta verð Premier Inn til þessa hefur verið 49 pund. Það er þó ekki aðeins verðið sem er rúmlega helmingi minna heldur herbergin sömuleiðis, en þau eru ekki nema 8,5 fermetrar að stærð.
Alison Brittain, forstjóri Whitbread, segir að nýja hótelkeðjan sé sérhönnuð fyrir þá kynslóð neytenda sem kallar eftir lægra verði á kostnað þæginda. Ljóst er að aðstandendur hótelkeðjunnar hafa horft til lággjaldaflugfélaga í þessum efnum en viðskiptavinum býðst að kaupa ýmsa umframþjónustu, sem ekki er innifalin í grunnverðinu.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181029768