Stærri tímamót en þjóðarsáttin

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hún ræðir um kjarasamninga. Samningar ríkis- og bæjarstarfsmanna losnuðu 1. apríl og er Sonja vongóð um að þeir kjarasamningar sem voru undirritaðir í gær milli verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins, auk „lífskjarasamninga“ ríkisstjórnarinnar, gefi góð fyrirheit í viðræðum vegna kjarasamninga sem framundan eru hjá BSRB.

„Megináherslan í þessum kjarasamningum er að verja þá sem eru með lægstu launin og það rímar mjög vel við stefnu BSRB og okkar kröfugerð núna í kjarasamningsviðræðunum. Það er auðvitað ánægjuleg niðurstaða. Krafan okkar er sambærileg og það verður horft til þess að það verði krónutöluhækkanir hjá okkur. Hins vegar er verið að leggja áherslu á að fólk geti lifað af laununum sínum en svo er líka krafan um styttingu vinnuvikunnar. Allt helst þetta í hendur. Það sem er aðeins öðruvísi á opinbera vinnumarkaðnum og það sem hefur verið meira um en á almenna vinnumarkaðnum eru veikindi fólks. Það má rekja til starfsaðstæðna. Þannig að það er skýr áhersla hjá okkur um að það verði horft til starfsumhverfisins í heild sinni.“ segir Sonja.

Hún segir samningana sem tókust í gær marka tímamót. „Þessir kjarasamningar, m.v. efni þeirra og mörg ný ákvæði, og síðan yfirlýsing stjórnvalda sem er mjög víðtæk og tekur til margra þátta, þetta eru ákveðin tímamót á vinnumarkaði. Það eru margir búnir að vera að vísa til þjóðarsáttarsamninganna núna í aðdraganda þessa, ég held að þetta marki enn stærri tímamót ef maður horfir til umfangsins á þessu öllu.“

Sonja segir BSRB fagna „lífskjarasamningum“ ríkisstjórnarinnar. „Það sem við hjá BSRB höfum lagt mikla áherslu á er lenging fæðingarorlofsins, og lækkun á tekjuskatti nýtist mest þeim sem hafa minnst á milli handanna, að því sé beint sérstaklega til þeirra. Síðan auðvitað er það átakið í húsnæðismálum. Við viljum tryggja að allir hafi þak yfir höfuðið þannig að það eru mjög mörg jákvæð skref sem er verið að taka eða verða tekin öllu heldur í kjölfarið af þessu.“

Nánar er rætt við Sonju í 21 í kvöld, en þátturinn hefst sem endranær klukkan 21:00.