Stærri rúm ástæðan fyrir því að hjón hætta að stunda kynlíf - börnin ráða matnum, heimili og svefntíma foreldra

„Samskipti foreldra og barna hafa breyst á liðnum árum. Börn eru í stöðugu sambandi við foreldrana gegnum snjallsíma. Þau hafa tekið völdin á heimilinu yfir matseðlum, samveru og svefntíma fjölskyldunnar. Þrátt fyrir þetta eru flest foreldri illa haldin af sektarkennd og finnst aldrei nóg gert fyrir barnið. Slíkt ýtir undir markaleysi í samskiptum foreldra og barna.“

Þessu heldur Óttar Guðmundsson geðlæknir fram í pistli í Fréttablaðinu. Heldur Óttar fram að barnafólk stundi minna kynlíf en áður og það megi meðal annars rekja til þess að fólk sofi í stærri rúmum en áður þekktist sem geri það að verkum að fjölmörg börn sofa upp í rúmi hjá foreldrum sínum. Óttar segir:

„Innileiki og nánd í samskiptum fullorðna fólksins breytist því miður til hins verra þegar hjónarúmið verður sameiginlegur svefnstaður fjölskyldunnar. Fólk lagar sig smám saman að þessu breytta lífsmynstri. Hjón hætta að sofa saman enda gefst sjaldnast tóm til þess.“

Minnkandi kynlíf, segir Óttar auka fjarlægð, samskipti versni sem valdi svo þunglyndi og kvíða.  

„Fólk hættir að tala saman og hverfur hvort inn í sinn snjallsímann.“