Flugvöllurinn stærsta hagsmunamál akureyrar

„Ég myndi segja að það væri stækkun flugvallarins og að við fáum s.s. stækkaða flugstöð og nýtt flughlað. Ég held að það sé kannski okkar stærsta hagsmunamál, það skiptir okkur mjög miklu máli að öllu leyti. Í raun og veru er það bara í meðferð hjá ríkisvaldinu,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, aðspurð um hvert sé mikilvægasta málið sem er á hennar borði í dag.

Ásthildur er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.

„Það hefur náttúrulega ekki verið vilji til þess hjá ríkisvaldinu eða kannski ekki fjármagn, ef allrar sanngirni er gætt, til þess að leggja í frekari uppbyggingu á flugvellinum. En okkur þykir það skjóta skökku við að það sé verið í svona mikilli uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli en ekki verið að leggja í töluvert minni framkvæmdir, brotabrot af því fjármagni sem fer í uppbygginguna í Keflavík, hér á þessu svæði samhliða. Það myndi breyta svo miklu fyrir atvinnulífið og ekki síst ferðaþjónustuna hér á þessu svæði,“ segir Ásthildur.

Hún segir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og Austurlandi, og raunar allri landsbyggðinni, vera í húfi. „Svo skiptir þetta náttúrulega líka máli fyrir atvinnulífið hér á Akureyri að hafa flugvöllinn og greiðar samgöngur, bæði innanlands og utan. Það myndi breyta mjög miklu fyrir atvinnulífið hér ef við hefðum t.d. beint flug til Kaupmannahafnar eða London einu sinni til tvisvar í viku. Það myndi skipta okkur mjög miklu máli.“

Ásthildur telur mikilvægt að dreifa ferðamönnum betur um allt land, ekki síst hvað umhverfissjónarmið varðar: „Opna gáttina beint hingað inn þannig að það sé auðvelt fyrir millilandaflug að vera með beint flug hingað til Akureyrar.“

Nánar er rætt við Ásthildi í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.