Þorsteinn Pálsson fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins er ómyrkur í máli:
\"Það voru þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem nánast í öllum málum hlupu út og suður. Þeir gátu ekki staðið við stjórnarsáttmálann og gátu ekki staðið við það sem formaður Sjálfstæðisflokksins hafði samið um við aðra í ríkisstjórninni. Það var líka ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem klúðraði málinu sem felldi loks ríkisstjórnina. Og sami ráðherra hafði raunar áður klúðrað skipun dómara við nýtt millidómstig. Og nú hefur forystumaður innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins upplýst að þingmenn flokksins hafi verið búnir að ákveða að fella fjárlagafrumvarpið og þar með ríkisstjórnina fyrir jól.\"