Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur undanfarna daga staðið skipverja þriggja fiskibáta að ólöglegu brottkasti. Við reglubundið eftirlit á Íslandsmiðum náðust bæði myndir og myndbönd sem sýna brottkastið. Unnið er að rannsókn málsins en skipstjórar fiskibátanna eiga yfir höfði sér kæru vegna athæfisins.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Þar segir að Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa tekið þessi tilfelli til sérstakrar skoðunar að undanförnu vegna gruns um að tiltekin skip stundi ólöglegt brottkast.
„Það er greinilegt að þarna er um brottkast að ræða. Ólöglegt brottkast sem við munum rannsaka nánar,“ sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær.
Landhelgisgæslan sinnir reglulega löggæslu á hafi úr lofti með flugvélinni TF-SIF. Flugvélin hefur öflugan myndavélabúnað sem gerir áhöfninni um borð færi á að sinna eftirliti með fiskveiðum úr töluverðri hæð.
Í þessum mánuði náðust áðurnefnd myndbönd og sýna þau svo ekki verður um villst dæmi um brottkast. Hér að neðan má sjá brot úr einu þeirra:
Í tilkynningunni segir að Landhelgisgæslan líti málið alvarlegum augum, enda brottkast með öllu ólíðandi þar sem um sé að ræða grófa aðför að sameiginlegri auðlind Íslendinga.
„Við lítum á þetta mál mjög alvarlegum augum. Þarna er um að ræða grófa aðför að auðlindinni. Svo ekki sé talað um náttúruvernd og þau sjónarmið sem þar kunnu að vera uppi. Þetta er málefni sem við munum reyna eftir fremsta megni að fylgja fast eftir,“ bætti Georg við í samtali við fréttastofu Stöðvar 2.