Forsætisráðherra festir þar með dómsmálaráðherra í sessi. En ekki mikið lengur.
Á samfélagsmiðlum er margt sagt um þetta mál sem og í fjölmiðlum. En hvað svo sem þar er sagt þá er víst að framabraut Sigríðar Á. Andersen sýnist þar með tryggð. Og það af sjálfum oddvita Vinstri Grænna. Ekki er þó allt sem sýnist.
Til skamms tíma gerðu liðsdoddar Vinstri-Grænna slíkt tilkall til dómgreindar og ráðvendni að ýmsum þótti nóg um. Nú má alþýða þessa lands hlýða þögul á þegar forsætisráðherra skýrir lýðnum frá umræðum og úrskurðum um mál dómsmálaráðherra. Er forsætisráðherra loddari?
En ef öll þessi kænskubrögð Katrínar Jakobsdóttur bila? Hvaða vígi er eftir til að halda uppi lögum og reglu? Hvað viðurkenna Vinstri - Græn á tímum upplausnar og bráðrar hættu?
Þá eru forréttindi dómsmálaráðherra ekki þrándur í götu skjótra úrræða sem Vinstri Græn beita til að bjarga fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.