Þeir Bretar sem styðja útgöngu Stóra-Bretlands ú Evrópusmabandinu (ESB) eru strembilega hróðugir yfir þeim árangri sem náðst hefur í Brexit samningaviðræðum Breta við ESB í Brussel. Skörpustu drættirnir í Brexit eru ekki enn komnir fram.
Enginn árangur hefur náðs segja tíðindamenn Hringbrautar í Brussel. Í dag hefst í Brussel fimmta og seinasta samningalota fyrstu umferða Brexit viðræðanna. Hvort fleiri umferðir verða skal ósagt látið. En á ríkisoddvitafundi ESB seinna í október munu samningamenn ESB gera ríkisoddvitunum grein fyrir gangi Brexit viðræðnanna til þessa.
Tíðindamenn Hringrautar í Brussel segja að ríkisoddvitarnir taki ákvörðun um framhaldið sem byggi á framvindumati og stöðugreiningu samningamanna ESB á Brexit viðræðunum.
Úttekt ríkisoddvitanna á gangi Brexit viðræðnanna verði á einn veg. Þetta séu tilgangslausar viðræður.
Knýja verði Breta til samningalipurðar í stað samningabralls. Bretars hafi gert Brexit samningaviðræðurnar að makki og hrossakaupum.