Nígeríski hælisleitandinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær í gæsluvarðhald til 20. ágúst að kröfu lögreglunnar er grunaður um að hafa smitað að minnsta kosti tvær konur hér á landi af HIV-veirunni.
Hann er grunaður um að hafa smitað konurnar vísvitandi, vitað af því sjálfur að vera smitaður og haft samræði við konurnar án allra varna.
Rannsókn lögreglunnar snýr meðal annars að því að skoða hvort fleiri konur kunni að hafa verið í samneyti við manninn og hvort þær séu smitaðar. Staðfest er að tvær konur hafa greinst með HIV efttir samneyti við manninn og á annan tug kvenna hafa farið í greiningu.
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir sagði í samtali við mbl.is í gær, að unnið sé að því að finna hversu umfangsmikið málið er, en það er gert með svokallaðri smitrakningu. Segir hann slíka vinnu gerða daglega hjá embættinu. Málið kom upp fyrir skömmu, þegar fyrsta tilvikið var greint og í kjölfarið hófst rakning smitsins sem leiddi til mannsins sem nú er í gæsluvarðhaldi.