Kári Stefánssson, forstjóri Íslenskra erfðargreiningar snöggreiddist og fór með formælingar þegar hann tók til máls á málfundi Pírata um nýbyggingu Landspítalans (LSH) í nýliðinni viku.
Hann var næstsíðastur á mælendaskrá og virðist sem reiðin hafi vaxið innra með honum eftir því sem fleiri tóku til máls, en af orðum hans mátti ráða mikla hneykslan vegna léttmælis og ábyrgðarlausrrar umræðu, að því er honum greinilega fannst. Hann spurði meðal annars hvernig fundarmenn, einkum Píratar, voguðu sér að gera það að deiluefni hvar nýr spítali ætti að rísa þegar mestu máli skipti að fjárfesta betur í íslenskri heilbrigðisþjónustu: \"Það skiptir engu fokking máli hvar svona andskotans spítali er reistur,“ sagði Kári – það væri algjört aukaatriði: \"Give me a fucking chance,“ bætti hann við á enskri tungu svo glumdi í slanum.
Kári hefur verið mjög gagnrýnin á stjórnvöld fyrir sofandahátt í heilbrigðismálum og birti nýlega harðorða grein í Fréttablaðinu þar sem hann kvaðst ætla að safna 100.000 undirskriftum fólks sem lofaði að kjósa aldrei aftur ríkisstjórnarflokkana, ef fjárlagafrumvarpinu yrði ekki beytt í þágu LSH. Ræða hans á fundi Pírata var í þessum anda, en þar rakti hann erfiða reynslu af íslenska heilbrigðiskerfinu og hvernig Ísland stæði sig í samanburði við hin Norðurlöndin og bað fundargesti ekki gleyma því til hvers heilbrigðiskerfið væri: \"Markmiðið hjá okkur er ekki endilega að gera það sem er skynsamlegast út frá skipulagsfræði heldur að hlúa að veiku fólki.“
Kári kvaðst undir lok ræðunnar vera bæði reiður og svekktur vegna inntaks umræðunnar – og til að vera samkvæmur sjálfur sér myndi hann því yfirgefa fundinn. Hann stóð við þau orð og flengdi hurðir.
Sara Elísa Þórðardóttir, sem á sæti í framkvæmdaráði Pírata, deildi myndbandi af ræðu Kára á Facebook-síðu sinni, en ræðan hefur vakið mikla athygli, enda ekki á hverjum degi sem Kári missir svo að segja stjórn á skapi sínu, þótt oft gári þar og jafnvel gott betur, en visir.is hefur meðal annars fjallað ítarlega um uppákomuna.